Magnað

Wednesday, December 14, 2005

Miðvikudagur....ekki þriðjudagur

Af einhverri ástæðu á ég erfitt með að muna hvaða dagur er þessa dagana. Hélt í morgun að það væri þriðjudagur. Dóttir mín leiðrétti mig meira að segja á mánudaginn (held ég) um mánaðardag???!! Ég sagði að það væri 11. .. nei þá heyrðist í minni úr herberginu sínu: mamma það er 12. ! .. er það ekki skrifað einn tveir?? Herragud hugsaði ég - hvað er barnið mitt orðið gamalt? Svo er þetta nú allt dagatalinu að þakka.

Litla mín var að búa til jólamerkmiða í gær. Fyrst var hún alveg brjáluð yfir því að geta ekki klippt beint - svo teiknaði hún fínustu mynd. Svo kom að því að hún ætlaði að fara að skrifa inn í ... ég kallaði til hennar (var í vinnuni dööö) að skrifa á eitthvað annað en kortið til að æfa sig. Haldið þið að hún hafi hlustað???? Nei. Það var ekki fyrr en hún kallaði: á ekki að vera Ö í staðin fyrir A númer 2 þegar það er frá... (það eru sko 3 A í nafninu sem breytast í A Ö og U - doltið flókið). Þá hafði hún óvart skrifað A og sýndi mér.................. Ómg - hún hafði skrifað allt afturábak!!! Spegilmynd og allt!!! Við Gaui prufuðum að gera þetta og strönduðum bæði á N...

Ómg.. ég gat ekki annað en hlegið að ónefndu "frægu" vinkonu minni sem var í sjónvarpinu sér til miiikillar gleði - eins og sást. Ef ég verð eitthvað fúl á næstunni þá hugsa ég bara til hennar og "15 min of fame"....hahahahahaha