Samsæriskenningin
Hver er ánægður með úrslit í Amasing?.. ekki ég. Ég er með samsæriskenningu. Þegar Rob og Amber voru að stinga af í síðasta fluginu og búið að neita svarta parinu ... hvað ?? Landgangurinn bara settur aftur á og vélin opnuð! Hver hefur séð þetta einhverntíman gerast??? Er ekki alltaf sagt á flugvöllunum "nei því miður það er búið að loka hliðinu"... en þá á eftir að loka vélinni og færa landganginn frá. Ég held að stjórnendur þáttarins hafi eitthvað með þetta að gera. Allt í einu kom "ok - þið komist með" EFTIR að allir starfsmenn hjá hliðinu voru búnir að segja nei. OG eitt enn - eru flug til Bandaríkjanna ekki með þeim ströngustu? Rob og Amber áttu að vinna - þau voru einfaldlega best. Hvað hefði gerst ef þau hefðu unnið ?? ... ekki það að ég sé eitthvað á móti svarta parinu - þau höfðu gott af peningunum.
Hver bíður spenntur eftir tv í kvöld... lokaþátturinn í Bachelor... hahahahaha. Alveg er ég viss um að það verður ekki gerð önnur þáttaröð. Þáttastjórnandin er algjör killer - hann er ekki að höndla þetta. Svo KOMMON er ekki hægt að klippa þáttinn aðeins betur?? "viltu þyggja rósina eða ekki!"
Anyways - það eru bara 9 dagar til jóla. Ég hef reyndar sjaldan verið svona langt komin með pakkana á þessum tíma - búin að keyra mörgum út ;) Og jólakortin já - pantaði með mynd og texta :s þarf lítið að hafa fyrir þeim þetta árið.
adios.

<< Home