Magnað

Tuesday, December 20, 2005

Vatten!

Blabla.. ekki mikið að frétta hér. Bara þetta sama og flest allir eru að gera þessa dagana - jólaundibúningur. Dem.. var að skrifa utan á umslög í gær (þarf ekki að skrifa inn í kortin you know) og var búin að skrifa á öll sem áttu að fara í póst + setja frímerki á allt. Svo fór ég að borða....og hellti öllu helv vatnsglasinu yfir helv umslögin (var með hálfslíters glas af vatni).... :( :(
fatta það núna að það var gott að ég var ekki með annað en vatn. En ég mátti semsagt hætta að borða og tína kortin úr umslögunum og plokka frímerkin af og byrja upp á nýtt... aarrgg. Það semsagt tókst að endurvinna frímerkin með smá hjálp frá límstifti.

Eftir það pakkaði ég inn nokkrum pökkum og á bara 3 eftir.. nennti ekki meiru í gær.
Við litla famelian ætlum að vera í Tröð um jólin .. nema hvar. Þar er ég búin að vera síðustu 24 jól !!! og Alexandra hefur alltaf verið þar...

Svo er það bara vinna framundan fram að jólum - þarf að taka mér frí frá dayjobbinu til að vinna í búðinni á þollák.. já talandi um þollák - hverjum dettur í hug að gifta sig á þessum degi??

Later..