Ballið
Það var einu orði sagt GEÐVEIKT á ballinu/tónleikum. Ég hef aldrei verið á einum og sama punktinum heilt ball þar sem hljómsveitin spilaði non-stop í 3 tíma…… Þau voru í svo miklu stuði sjálf að það var bara æðislegt að horfa á. Enda tímdi ég ekki að færa mig af staðnum þar sem hann var bara of góður… Kverkarnar voru orðnar ansi þurrar en undir restina mætti einhver í hópnum með vatnsglös á liðið (sá aldrei hver). Hafi mig einhvern tímann langað í plötu/disk þá er það með þessum lögum og Dilana og Magni syngja!

<< Home