Stóra stelpan
Smá samtal frá því í morgun:
Ég: Alexandra þú verður eiginlega að fara niður af pallinum (við baðvaskann) svo að ég geti greitt þér - þú ert orðin svo stór....
A: já ég er svo dugleg að borða, amma segir að ég sé miklu duglegri að borða en þú varst.
Ég: já segir hún það.... ok það er alveg satt - þú ert duglegri.
A: mamma veistu af hverju ég er svona dugleg?
Ég: nei.....
A: af því að ég vill ekki vera svona lítil eins og þú....................

<< Home