¡España y otra!
Nú stefnir maður á Spán :).. reyndar 2 vikur í það
Smá lýsing:
Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, um 100 km sunnan við Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar - þangað fer ég pottþétt. Salou skartar stórkostlegum ströndum , fjölbreyttri aðstöðu, menningu og litríku næturlífi. Í Salou er prýðilegt úrval af verslunum sem gaman er að skoða. Einnig er mjög gott að versla í Tarragona þar sem úrval er enn meira. Tarragona er í um 15 km fjarlægð frá Salou, en þar er verðlag mun hægstæðara en í Barcelona - pottþétt þangað :)
næsta helgi - á afmæli en verð að vinna fyrripartin. Svo get ég valið um:
1) ljósanótt í Kef - fer ekki þangað en Gaua langar að fara eitthvað árið.. það kemur ár eftir þetta.
2) uppskeruhátíð Tindastóls - þar sem ekki var mikið uppskorið þá sleppi ég því alfarið..
3) 30 ára afmæli hjá Öllu ...... langar og er ekki búin að útiloka alveg
4) ætlaði að halda upp á afmælið mitt þessa hlegi þar til nr. 5 kom í ljós
5) ættarmót á Hofsós, samt í mömmu ætt - afi gamli hefði orðið 100 ára. þangað hópast semsagt ca hálfur Skagafjörður.. hum kannski ekki alveg svona margir. Ég lít svo á að það verði afmælisveisla nr. 1 - tekið verður á móti pökkum, já og blómum sem keypt eru í fínu blómabúðinni á Króknum ;)

<< Home