Magnað

Tuesday, October 10, 2006

dóttirin

Maja sendi mér mail um daginn þar sem nokkrar spurningar voru lagðar fyrir krakka um mömmur þeirra. Ég ákvað að spyrja Alexöndru. Hún var nú ekki til í að svara öllum spurningum en læt þar allar flakka og skora á hinar mömmurnar að spyrja sín:

Hvers vegna Guð bjó til mömmur ?
- Svo að börnin geti verið til

Hvernig bjó Guð til mömmur ?
- uuu veit ekki (of gömul til að segja að hún hafi dottið úr skýjunum en of ung til að segja að um kynlíf hafi verið ......aaghhhh m+p hvað er ég að segja hér!!!)

Úr hverju eru mömmur búnar til ?
- út blóði, æðum og beinum. (nema hvað)

Af hverju gaf Guð þér þína mömmu ekki einhverja aðra mömmu?
- (no komment..)

Hvernig var mamma þín þegar hún var lítil stelpa?
- (hvernig á hún að vita þetta?? ... no komment)

Hvað þurfti mamma þín að vita um pabban þinn áður en þau giftust?
- hvort hann væri góður

Af hverju giftist mamma þín pabba þínum?
- af því að hann er svo skemmtilegur

Hver ræður heima hjá þér?
- mamma og pabbi

Hver er munurinn á mömmum og pöbbum?
- uuuu

Hvað gerir mamma þegar hún á frí?
- er með mér

Hvað þarf mamma þín til að vera fullkominn ?
- var ekki viss hvað þetta þýddi..reyndi að útskýra en mín var ekki í stuði fyrir það?

Ef þú ættir að breyta einhverju við mömmu þína hvað væri það ?
-ENGU :) ………..ef ég segi eitthvað annað fer hún í fýlu!! (THANKS)