Magnað

Monday, December 11, 2006

þetta barn.

Hvað haldið þið að dóttir mín hafi gert í gær...? Hún rölti með vinkonu sinni í hina blómabúðina og skoðaði sig um...!!! Hún er alveg hörð á því að hin búðin sé líka flott - alveg sama hversu vondan svip ég sendi henni, skil ekkert í þessu bara. Reyndar sagði hún mér í morgun að henni finndist dótið í okkar búð flottara (hjúkkett) en það var eitt sem var voða flott í hinni (næstum því eins flott og flottasta dótið hjá okkur) - einhver kúla með jólasveini og snjókornum sem snjóa endalaust..................Það skortir ekki sjálfstraust hjá henni.