Magnað

Monday, December 04, 2006

Aktu taktu ..

Við famelian fórum eina hendingsferð í borgina í síðustu viku. Ég veit.. heimsótti engan. Við fórum á tónleika á fim kvöld sem voru æði. Fyrr um daginn vorum við í bílunum og allir að hlusta á útvarpið þegar auglýsingin kemur frá Aktu taktu (það verður að syngja þessa setningu - aktu taktu). Stuttu seinna (og enginn farinn að segja neitt ennþá) þá heyrðist sungið afturí með aktu taktu laginu: Haltu kjafti .....uuu smá misskilningur.