Magnað

Wednesday, November 01, 2006

ble..

er ekki alveg glöð - er búin að vera að semja við fyrirtæki (karl) á Akureyri til að setja steinteppið á fyrir mig. Já já ekkert mál hjá honum, kostar þetta mikið... ok ég samdi við hann að ég myndi sjá um undirbúningsvinnuna sjálf (eða sko Gaui minn og vinir) sem áttu að vera skv honum 4-6 klst í vinnu. Fékk svo tilboð áðan *helv* auli - nei nei var það ekki bara dýrara en hann hafði sagt mér í síma. Átti að kosta 3500 með öllu fyrst pr.fermeter en núna 3600 án undirbúningsvinnu. Ekki glöð. Er að reyna allt sem ég get til að taka þessu ekki.

Annars er ég frekar andlaus.. var reyndar að ákveða að fara á tónleikana 30. nóv ... hlakka geðveikt til :)
Og já .. var að bóka Alexöndru í nefkirtlatöku 9. nóv. Annars verð ég að segja ykkur brandarann sem hún skilaði í skólann í dag - allaf 1x í viku á hún að skila "sögu" í sögubók og nú var viðfangsefnið brandari. "Allir í bekknum mínum heita Jónas nema Páll hann heitir Gummi"..............