kvöldið
Sú hefð er komin á í famelíunni að það er X-factor partý á föstudagskvöldum. Mér finnst skemmtilegra að horfa á þáttakendur þarna heldur en í Idol (þe íslenska) bæði af því að þetta er fjölbreyttara og svo velja þau bara eitthvað lag - ekkert þema kjaftæði sem virkar ekki fyrir alla. Það er reyndar viss galli að dómararnir 'haldi' með sínum og eru þal ekki endilega að velja þann sem er betri...í guðanna bænum sendið Jóhönnu heim þegar hún lendir aftur í botninum. Ellý er alveg aaaaagalega misheppnuð og er það vægt til orða tekið. Af hverju æfir hún ekki kynningarnar eitthvað??? amk aaaaðeins. Það sem er æði þarna er Palli - hann er bara snilli og gerir oft mikið grín af Ellý. Dísus hvað ég hló þegar hún var eitthvað búin að gagnrýna einhvern í hans liði - þá sagði hann: þú sem kannt ekki einusinni að fallbeygja nafnið þitt - hér er Ellý, um Ellýs, frá Olís, til Esso... ég veit ég er doltið fyrir aulabrandarana.......... Gaui hlær alltaf líka en ég held það sé meira svona af því að ég hlæ svo mikið.. hann er sem sagt að bara að hlægja af mér ekki með mér.....

<< Home