Jólahjóla hvað
ohhhhh bara ein helgi eftir og þá eru jólin búin *snökt* Af hverju er ekki hægt að ýta á pásu td á jóladag... ? Eða kannski bara replay!
En jólagjafir - sú sem ég er mest búin að nota síðan á aðfangadagskvöld eru náttföt frá Gaua og Alexöndru.. hissa? Bókin frá Maju liggur á náttborðinu og horfi ég á hana á hverjum degi og hugsa: jæja er þetta dagurinn sem ég byrja að lesa?? Ég er eitthvað hrædd um að ef ég byrja að lesa þá hætti ég að hafa tíma til að sofa..............og ég elska að sófa - á nóttunni og frameftir eitthvað. Svo ég er ekki byrjuð - td er Gaui að lesa bókina Skipið - hann gat ekki sofnað eitt kvöldið/nóttina eftir að hann var að lesa. Aðrar gjafir - sko ég keypti 3 sæta sófa í Línunni, held að það hafi verið í vor. Var ekki viss á plássinu í litlu stofunni og ákvað að kaupa bara hann. Langaði helst að kaupa 2x eins manns sófa (já sófa þeir voru það stórir) + það að stykkið kostar aðeins 100 þúsund! (og 3sæta 140 - skil ekki þessa verðlagningu) Þá sagði þessi ágæta afgreiðslu-kona að þau fengju alltaf að vita ef þessi og hin lína væru að hætta þannig að ég gæti bara verið á lista sem þau færu alltaf yfir. Svo ég ákvað að leggja í það að kaupa single sófann..... Fór svo í Línuna í byrjun des til að kaupa efni til að bera á fína sófann. Þá fékk ég að vita að þau voru að fá lista og það ætti að hætta að framleiða þessa línu - mína línu. Svo við ákváðum að panta 2 stk stóla við single sófann og báðum mína famelíu um gjafabréf í Línunni í jólagjöf. Svo korter í jól er hringt - því miður, það er bara ekki hægt að fá stólana.......................aaaaaaaaarrrrrrrrggggggggggggg WTF osfrv...
Frábært að opna jólapakkan frá mömmu og pabba + systkinum þar sem við fengum gjafabréf fyrir 'engum' stólum!! Og ég þurfti auðvitað að tuða til þess að eitthvað yrði boðið.. ég semsagt spurði afgreiðslu-konuna hvað þau ætluðu að gera fyrir mig í staðin. Já sko leðrið er ekki hætt...................frábært. Ég get semsagt fengið aðra stóla með eins leðri - akkúrat það sem ég óskaði!! ok nú er ég bara orðin pirruð á að tala um þetta svo ég er hætt - í bili amk.
Sá brot úr jólaþætti með breskum (held örugglega breskum) kerlingum - já ég segi kerlingum. Þær voru flestar eins og þær væru með mistilteininn í rassinum yfir jólin. Fyndið samt. Það var verið að tala um jólagjafir frá eiginmanninum og sagði ein þegar hún hafði opnað pakkann: "hugsaðiru eitthvað til mín þegar þú keyptir þetta"............... úpps. Það voru pottar og pönnur, straujárn ofl. Eru bretar svona ógeðslega ömurlegir shopparar?? Svo var víst vinsæl spurning: áttu kvittunina? Ein sagði að eftirminnilegasta gjöfin er gjöf sem vinkona hennar fékk frá mömmu sinni: Handsápa á reypi, notuð ... með pubic hairs!!!!!!!!!!!!!! OOOOOOJJJJJJJ

<< Home