Helgin að baki….
...og snérist hún bara um brúðkaupið hjá Maju og Gunna. Við famelian brunuðum suður á föstudagsmorgunn en við Maja fórum svo á rúntinn til að kaupa inn skraut og blóm og fínerí… það lukkaðist svona asskoti vel ;)
Brúðkaupið sjálft var bara brilliant – athöfnin í salnum, stutt og persónuleg – presturinn gleymdi reyndar að bjóða Gunna að kyssa brúðina….held það hafi verið af því að það gleymdist að borga prestinum………. Jónsi söng í athöfninni, bara alveg ágætt hjá honum. Auddi var veislustjóri og sá um að skemmta liðinu – já það var mikið hlegið. Pétur Jóhann mætti á svæðið og voru allir með í maganum af hlátri – hrikalega fyndinn. Svo kom Magni … segi það enn og aftur – Besti söngvari í heimi – ekki spurning. Sko nú vitið þið af hverju ég sagði að Jónsi hafi bara verið ágætur …. Söngur hans eiginlega bara fölnaði þegar Magni opnaði munninn. Og að lokum var það Helga Braga – mér finnst hún bara æði. Svo var dansað og tjúttað til eitthvað rúmlega fjögur.. hef aldrei afrekað það að vera hent út úr brúðkaupi áður……….. fólkið sem sá um salinn var víst búið að segja að það væri enginn tímasetning á þessu og við mættum vera eins lengi og við vildum – þau hafa greinilega ekki kynnst álíka hópi áður. Ég meina hvaða nýgiftu hjón eru enn að tjútta kl 4.30 ???
Takk elsku Maja og Gunni fyrir frábæra helgi !!

<< Home