lykilorðið
össs ég er búin að vera í nokkra daga að rifja upp lykilorðið til að geta bloggað… veit ekki hvort þetta er aldurinn eða kannski bara ég?
Í síðustu viku skrapp ég á Bíldudal – já Bíldudal. Ég var SVO fegin þegar ég komst að því að það var flogið þangað, sá fram á verulega skemmtilega bílferð fram að því. En rosalega var þetta fínt útsýnisflug.
Á meðan ég var á Bíldudal ákvað Gaui að skella sér á 4 daga námskeið í akademíunni í Kef – hann tók Alexöndru með sér. Svo við sáumst ekki í 5 daga.. ég svaf semsagt ein í 5 nætur……..vá hvað ég var úthvíld og ekkert þreytt þegar ég vaknaði á sun morgun – er eiginlega alltaf þreytt á sunnudögum já og hina auðvitað líka. Svo á mánudagsmorgninum ætlaði ég varla að komast af stað….dios mio. Þá er þetta allt barninu að kenna að ég er svona þreytt því hún er alltaf ALLTAF að koma uppí. Jeminn hvað ég er orðin þreytt á þessu. Svo nú er ég vonda mamman sem leyfir engar uppíkomur og alls ekki að sofna annar staðar í sínu rúmi. Ég varð ansi nærri því að verða geðveik eftir fyrstu nóttina og eiginlega bara eftir kvöldið þar sem það var mikið grátið yfir því að þurfa að sofa í sínu rúmi alltaf………í síðasta skiptið (kl ca 5.30) var kallað á pabbann í staðinn svo ég eiginlega hvæsti á Gaua að hann mætti ekki leggjast uppí hjá henni. Auðvitað var hún búin að búa til pláss fyrir hann og bað hann að leggjast hjá sér… þekki hana pínu sko. En nótt nr. 2 var skárri og vonandi versnar það ekki. Held að hún hafi vaknað 3x í nótt. Mér líður eins og ég hafi ekki sofið út í 3 vikur…

<< Home