Magnað

Friday, March 23, 2007

Up most fabulous

London var æði. Líklega var hluti af 'æðinu' að komast í frí. Mér var alveg sama þó ég væri útgrátin í útliti... ég bara saknaði Gaua svo mikið (hann fór 3 dögum fyrr til Kef að vinna). Siríuaslí... ég saknaði hans kannski ekki alveg svona mikið, var bara með massa augnsýkingu og var því dálítið erfitt að keyra suður í sól-snjó birtu.... tárin láku undan sólgleraugunum. Æði! En mér var alveg sama, ég var á leiðinni til London ;) Var alveg búin að ákveða það að kaupa mér augnkrem í fríhöfninni. Svona til að draga úr puffíness, btw var búin að ákveða það fyrir sýkingu. Greyið konan sem var að aðstoða mig stökk á augnkremið: " þetta er það sem þú þarft" Thanks
Nánari ferðasaga kemur kannski eftir helgi. Ef hún verður ekki bara útrunnin...