Doltið erfið helgi..
Já þetta var pínu erfið helgi. Gaui í Kef og við Alexandra á Króknum. Dæææsss.
Eftir vinnu á laugardeginum gerðist nokkuð sem ég hef ekki lent í leeeeennnngggggiii.
Heimilið var sæmilega hreint, búið að þvo allan þvott, Gaui í Kef, Alexandra hjá vinkonu, allt bókhald bókað ..... vááá. Ég gat gert hvað sem ég vildi (svona upp að vissu takmarki þó) án þess að hafa á samviskunni að ég ætti að vera að gera eitthvað annað!!! Svo ég horfði á helling af Friends. Ein bók á náttborðinu hjá mér sem ég opnaði ekkert um helgina. Mér leiddist aldrei en þetta var skrítið.

<< Home