Magnað

Monday, July 16, 2007

Ein í kotinu

Já ég er ein í kotinu þessa dagana. Gaui og Alexandra eru í Gautaborg en hitta mig svo heima hjá Hreiðari á sunnudaginn. Ég fer út á föstudaginn með sas fyrir heilar 6000 krónur...
Það var kannski eins gott að þau voru ekki heima um helgina.. brjálað að gera í búðinni og var ég eiginlega doltið þreytt þegar ég lokaði um fimm leytið á laugardeginum. Um morguninn (laugardags) var ég alveg að dröslast á fætur þegar Gaui hringdi kl 7.30.. á laugardagsmorgni.. hvernig vissi hann að ég ætlaði að vakna svona snemma?? Hann áttaði sig ekki á því að það væir helgi!! Hann var búin að vera úti í einn dag. Fór á föstudegi. Það er eins í Svíþjóð .. það kemur laugardagur á eftir föstudegi. Ég bað hann bara vinsamlegast um að hringja ekki á sama tíma daginn eftir - jú nó sunnudagur. Ohhh hlakkaði til að sofa þar til ég vaknaði án þess að vera vakin af vekjaraklukku eða öðru. Nei, nei haldið þið að Gaui hafi ekki vakið mig aftur!!! Reyndar var klukkan að verða 11 en ég var enn sofandi. Hann getur bara ekki án mín verið ;)