Er að bresta á..

loksins loksins.. 3 dagar í sólina !!
Fer suður á morgun eftir skóla og vinnu og niðurpökkun og frágang og... já. Ég á semsagt efrir að gera slatta áður en ég fer. Flugið er ekki fyrr en um 2 á laugardag þannig að til tilbreytingar þurfum við ekki að vera mætt um miðja nótt upp á völl.
Ég er sko búin að komast að því hvers vegna vinkonur mínar eru svona óskaplega latar við að blogga... þær eru meira og minna óléttar!! Morgunógleiðin hefur líklega haft þessi bloggletiáhrif!!
Annars er ekki mikið að frétta. Ég er þreytt og bíð eftir því að komast í frí.....

<< Home