Jólin og allt
Halló allir. Þá er helsta hátíðin gengin yfir.. :'(
Mikið rosalega hafði ég það gott - svona rétt á meðan búðin var lokuð. Í bjartsýniskasti fyrir jól var ég búin að áætla að fara í langt jólabað um klukkan þrjú....nei góða mín. Ég skaust í bað rúmlega fimm! Ég reiknaði með nýrri sæng í jólagjöf og var sko að þvo og straua sængurverin sem ég keypti fyrir peningana sem frúin í Ham... nei amma gaf okkur. Það átti sko að vera aaaagalega kósí þegar ég kæmi heim aftur með nýju geggjuðu sængina. Við skelltum okkur svo í kirkju með mömmu, pabba og Söndru. Alexöndru fannst það nú mikið sniðugra heldur en að bíða bara heima eftir því að tíminn myndi líða - og hann líður víst hægt rétt fyrir jól á þessum aldri. Eftir það keyrðum við í Tröð og borðuðum helling mmmmmm hvað maturinn var rosalega góður - fékk bara vatn í munninn við að skrifa þetta! Eftir möndluna - sem Sandra vann hummmfff - var ráðist á pakkaflóðið. Jeminn hvað það voru margir stórir! Við vorum líka í tölvu/tal/mynda sambandi við Hreiðar (í sverige) og Steina (NY) til skiptist og buðum þeim Nóa konfekt hahahha...
Draumurinn rættist og ég fékk sængina mína - og kodda líka. Var sko með backup plan - Gaui fékk kodda frá m+p og sæng frá m+p hans. Ég hefði bara legið undir hans ef ég hefði ekki fengið......
Svo leyndist nú ýmislegt annað í pökkunum. Meðal annars fékk ég 3 Hagkaupsbækur (Landsliðsréttir)... fá allir svona vondan mat hjá mér eða hafa þeir trú á að ég geti eldað á við landsliðskokk með smá hjálp?? Þetta voru greinilega hlý jól því ég fékk líka ullarpeysu (sem mamma prjónaði), kuldaskó og ullarsokka, flísteppi og svo auðvitað sæng (dúnsæng) og kodda (IQ care heilsukodda).
Eftir pakkaupptöku og konfektát skruppum við (með kjaftfullan bíl) í Eyrartún til Gunna og Guðnýjar. Þar mikið fjör - eins og alltaf. Að því loknu fórum við heim, rusluðum öllu inn og settum utan um nýju sængurnar - og kúrðum þar næstu 12-14 tímana ;)
Á jóladag fórum við í jólaboð til ömmu - eins og alltaf. Þar er kökuhlaðborð og heitt súkkulaði í fjöllum ásamt ættingjum. Að sjálfsögðu voru allir svo svangir eftir það ... að við fórum í hangikjöt í Tröð. Eftir það spilaði famelian Trivial afmælisútgáfuna. Og svo heim undir sæng... :)
Annan í jólum ... í Tröð í svínakjötsafganga og svo í Eyrartún í kaffi síðar um daginn - þar var líka fótbolti í tv fyrir Gaua. Við semsagt lifðum gjörsamlega á mat annars staðar en heima hjá okkur - gerðum samt heiðarlega tilraun til að segjast geta komið með hitt og þetta en mamma hló að mér og sagðist sko alveg geta boðið okkur í mat..
Svo ætlaði ég að vera í fríi 27. og 28. Tók sumarfríi í Bygg en það var brjálað að gera í búðinni.. Fór að vinna kl 7 í gærmorgun... voða gaman að eyða sumarfríinu í það :(
Vinna núna í 2 daga og svo er komin helgi aftur - jibbý. Um áramótin verðum við í Tröð í mat .. nema hvað. Gunni og famelí, amma og Nonni hennar Söndru verða reyndar líka. En reyndar sé ég um forréttinn - ætla að hafa porto bello sveppi með ferskum mozzarella og hvítlauk og pestó grillað í ofni .. mmmm rosalega gott. Mamma sér svo um aðalréttinn sem ég held að verði kalkúnn og eitthvað annað, er alltaf með tvennt. Og svo er Guðný með eftirréttinn ... hvað gera karlarnir - líklega horfa á fótbolta.
Herra gud.. orðið doltið langt núna enda frá mörgu að segja. En að lokum: Hafið þið það sem allra best elskurnar mína, og gleðilegt nýtt ár. Eða "gleðilega rest" eins og yfirmaður minn sagði í morgun..

<< Home