Magnað

Wednesday, March 01, 2006

Rosso posso

Já í gær fór ég með Fríðu og Ingu á Rossopomodoro sem er á Laugarveginum. Þar var að finna salta pizzu, frekar salt brauð og ómerkilegt spaghetti.....maturinn var semsagt ekki til að hrópa húrra yfir. Þjónustan var eiginlega ekki heldur til að fagna - sú litla þjónusta sem við fengum var ágæt... Mæli semsagt ekki með staðnum!

LOKSINS er byrjað að flísa í kjallaranum hjá mér.. ómg hvað ég er orðin leið á að hafa allt í drasli þarna niðri aarrrrggg... sé hugsanlega fram á endalokin þar. Fer í saumó í kvöld á meðan það er verið að flísa ;)


Að lokum þá á Inga á afmæli í dag - Til hamingju esskan mín!