Sólin...
Nú get ég ekki hætt að hugsa um að komast í sumarfrí í sólina! Okkur hefur alltaf langað aftur til Krít. Þar var bara dásamlegt að vera. Spurning samt hvort það er of rólegt fyrir Alexöndru en hún fær að koma með í næstu ferð og erum við að velta fyrir okkur að fara til Tyrklands - Marmaris. Þar eru flott hótel og það sem kitlar okkur mest er eitt sem er með 8 vatnsrennibrautum. Þar væri Alexandra til í að eiga heima!! Á því hóteli er "allt innifalið" - matur allan daginn ... Það er reyndar eitthvað bilað á vefnum þannig að ég hef ekki getað skoðað það hótel ennþá .. kemur í ljós.
Hljómar vel ekki satt..?

<< Home