Magnað

Wednesday, February 08, 2006

mikið að hugsa

Það er svo margt að gerast í kollinum þessa dagana - var í Rvík í gær á þeytingi og fundi. Búin að vera að kaupa inn fullt af geggjað flottri vöru í búðina - og hef svo engan tíma til að stilla upp....þetta selst víst ekki þegar það er bara bakvið í kössum svo ég verð að taka mig á í dag og á morgun - þyrfti helst að eiga svona 10 klst í búðinni án þess að verða fyrir truflun eins og viðskiptavinum.... ;) Svo er ég þokkalega þreytt og væri til í að sofa í 10 klst - einnig án truflana. Og svo er Rvíkur ferð um helgina með fyrsta stoppi í Básbryggjunni, en svo á að reyna að slappa af um helgina...

og fyrir utan þetta daglega þá erum við að spá í sumarfrí, húsbyggingar - en væntanlega verður byrjað að úthluta lóðum í þeirri götu sem við erum að spá í í sumar. Ný hugmynd kom upp í gærkvöldi...Magga (saumógella) og Raggi (frá Hamri..) eru að spá í að byggja líka í þessari götu og eru með svona líka eins hugmyndir .... það var eins og Gaui og Raggi og svo ég og Magga værum búin að tala um þetta í mmmmööörg ár - allar hugmyndir voru nánast eins - nema þau voru búin að ákveða hvernig húsið ætti að vera að utan - við vorum ekki komin eins langt með það. Svo við ætlum að skoða málið að byggja hlið við hlið - kannski raðhús sem verður "fast" saman á bílskúrunum - og ná þannig niður einhverjum kostnaði! Raggi er múrari og getur múrað allt og flísalagt, Gaui spartlar og málar allt .... Agalega líst mér vel á þetta!.... NEMA - ef við kaupum lóð í sumar þá verða nú ekki miklir peningar eftir fyrir sumarfríinu... LOTTO here I come!