Magnað

Monday, February 27, 2006

Helgin var góð...

Já þetta varð hin ágætasta helgi. Famelían horfði í rólegheitum á Idol á föst og fórum við svo tiltölulega snemma að sofa. Alexandra fór á sundnámskeiðið á laug morgun með pabba sínum á meðan ég var að ..... já vinna. Eftir vinnu skelltum við okkur í bústað í Varmahlíð með matarklúbbsmeðlimum. Sandra (besta-systir) kom norður sérstaklega til að passa fyrir 3 hjón - semsagt 6 krakka. TAKK Sandra ;)
Í bústaðnum (vorum reyndar með 2) höfðum við það agalega kósí - strákarnir áttu að sjá um matinn og við stelpurnar um skemmtiatriði og staðinn. Mikið agalega vorum við fegnar að þeir áttu að sjá um matinn þegar þeir voru að grilla og eldast en við stelpurnar vorum í pottinum að sötra á freyðivíni og takandi mynd af tásunum á okkur (eitt af skemmtiatriðunum). Skil ekki enn að Heiðar hafi viljað eiga Guðnýjar tásur, en eins og hann orðaði það eftir nánari athugun þá sagði hann: hvað er þetta bentu í austur bentu í vestur???.....já þær eru svona beyglaðar!!!
Ég kynnti fyrir þessum hóp hið altalaða BUZZ spil - það heppnaðist ágætlega.....

En veðrið .. það var blanka logn, alveg stjörnubjartur himinn og geggjuð norðurljós!! geggjað..

Svo bruna ég suður í kvöld- enn einn fundurinn framundan..

adios