Magnað

Wednesday, June 14, 2006

draumar

Mikið rosalega dreymdi mig marga drauma í nótt.. eftir að ég drattaðist á fætur var ég að muna hina ýmsu drauma...engin merkilegur svosem. Af hverju dreymir mig svona mikið og af hverju dreyma sumir ekki neitt??? Gaua dreymir til dæmis mjög sjaldan. Kannski er þetta eitthvað hint um að maður eigi að fara að skrifa eitthvað niður. Einu sinni dreymdi mig þvílíkan draum og þegar ég hugsaði um það hefði það geta verið rosa kvikmynd!! ég er því miður búin að gleyma draumnum .. bara pláss fyrir svo og svo mikið í einu!