Europartý
Við mæðgur vorum með eurovision partý í gær - hún verður alltaf svo spennt þegar minnst er á partý - ein besta leiðin til að ná henni í gott skap. Hún fékk að velja hvað var í matinn og svo 1 nammi á eftir. Heimabökuð pizza (af því að hún er best í heimi var mér sagt) varð fyrir valinu ásamt snakkpoka sem ég naut góðs af.... usssusss Silvia rann doltið svona á rassgatið með þetta - þetta var bara ekki að virka.
Ohhh hvað ég hefði verið til í að sjá Regínu Ósk á sviðinu í gær- ég er viss um að við hefðum komist áfram á því lagi :'(
En jæja - ég er samt á leiðinni í Eurovision partý á morgun - en MAJA verður ekki lengur twenty something eftir daginn í dag.....Svo er ferðinni heitið á Nasa í áframhaldandi partý.

<< Home