Jebbs, Maja hafði rétt fyrir sér!
Það var stuð - stuð - stuð!
Eurovision-afmælis-partýið var frábært. Veitingarnar (heitir réttir, kökur og BLÁ bolla) algjör snilld. Jömmí. Ekki skemmdi það nú fyrir hvað fólkið var í miklu stuði - meira að segja Gaui minn sem var ekki að drekka - hann er óléttur jú nó - eins og Rebekka! Sko - í minningunni fyrir 5 árum þegar annað eins partý var á sama stað (og verður þegar Maja verður 35 held ég bara) þá voru flestir sauðdrukknir og leigubílabiðin var Lööööööng og Köööööld. Þannig að Gaui minn keyrði bara og skemmti sér vel!
Þvílíkt stuð á Nasa.. Páll Óskar er bara snillingur! Ég var búin að segja við Gaua að ég ætlaði ekki á uppskeruhátíðina í haust en er til í að skipta um skoðun EF Páll Óskar verður að skemmta... þá sagði Gaui að hann þyrftir að fara að semja við hann.....

<< Home