Magnað

Tuesday, May 09, 2006

Ferðasagan...þetta kemur allt að lokum!

Já eins og ég skrifaði síðast fór famelían til London í 5 daga. Ferðin byrjaði - eins og alltaf - á Króknum - daaaa... Klukkan 4.45 fór húsfreyjan á fætur í sturtu, vekja, klæða og reyna að koma Alexöndru í gott skap - hún svaf nefninlega bara í 5 tíma... doltið svona lítið fyrir fröken stjórnsömu. Upp á völl mættum við 5.25 og já það var röð - ekki MJÖG mikil - en um það bil hálftíma röð samt. Í 'tékkinninu' bað strákurinn (sumarafleysingar byrjaðar að mér skilst) um skilríki með mynd. DAAA ég gleymdi passanum hennar Alexöndru heima - %&#"$%$%$ Jæja - rétti honum okkar passa (Gaua og minn) og já ekkert mál við flugum inn :) :)
Hjúkk - við þurfum líklega ekki passa sagði ég. Fengum okkur morgunmat - þið vitið ekki þennan sem er næstum því ókeypis heldur hinn... úff hvað það var eitthvað kjaftfullt þarna inni. Held að þeir ættu að drífa sig í því að fjölga/stækka þetta pláss - já og hækka verðið þar sem þetta er svona ódýrt! Og svo var að sjálfsögðu krema innkaup ásamt fleiru. Hlið 32 hér komum við.... laaaaangur gangur - sérstaklega þegar frökenin er ekki bara þreytt heldur ósofin. FUCK.. það þarf að fara í gegn um vegabréfseftirlit þegar farið er til London.. eða bara Englands. uuuuuu reyndum aftur bara að rétta vegabréfin 2 .. og bording dótið (og hefðum sko alveg geta sleppt því að rétta hennar þar sem röðin var í kássu og nefið á mér rétt náði upp á afgreiðsluborðið - Alexandra sást ekki- en nei við bara erum heiðlegri en það. ÓÓÓ.. nei sorrí .. það þarf vegabréf fyrir frökenina líka... 20 mín í flug og vegabréfið á Króknum. Þó að við hefðum húkkað herþotu þá hefði sá tími ekki dugað.... En viti menn vegabréfseftilitskarlinn (framvegis 'vek') var svo næs að hann sagði okkur að það væri hugsanlega hægt að redda neyðarvegabréfi svo Gaui tók á sprett með Alexöndru - já og það var eiginlega hinumegin í flugstöðinni - og 'vek' hringdi á undan og bað um neyðarvegabréf og hringdi á hlið 32 og bað þá um að anda rólega.... Gaui hringdi 5 mín seinna - "ertu með mynd af henni".. uuu nei. Og ég bara skil ekki af hverju - því ég á held ég 10 passamyndir af henni heima. 6 mín seinna (9 mín í flug) hringdi ég - stutt svar: " þetta er að reddast" - barnið var látið skrifa nafnið sitt á vegabréfið og umsóknareiðublaðið - sem var allt í lagi því það bræddi alveg úr gamla grömpí karlinum sem var ekki með 10 í þjónustulund...hinn var ljúfur frá upphafi. Djöflull var þetta flott mynd - not - af ósofnu frekar fúlu frökeninni.. úfið hár þar sem maður er aldrei eins hársár og kl 5 um nóttina. Á meðan ég beið kom 'vek' og talaði við mig - hann hafði smá áhyggur af þessu. Þá var hann líka búin að hringja í einhver í tékkinninu og skamma þá fyrir að hleypa okkur í gegn - það hefði jú verið hægt að redda þessu vegabréfi þá. 4 mín í flug... þá sá ég þau koma hlaupandi ... eða Gaua hlaupandi sveittan. Jú þetta hafðist og við komumst með!!!! THANK GOD að við vorum með vegabréfið því við komuna til London var þessi massíva röð í vegabréfseftirlitsdótið. Og þar var 'stopp' lína 5 metrum áður en maður gat andað á fólkið í eftirlitinu.

Eftir okkur beið bílstjórinn sem keyrði okkur heima að húsi hjá Gumma, Guðrúnu og Huldu Sóllilju. Flott hús á flottum stað - Radlett sem er í norðurLondon. Herbergið sem við vorum í var eins og hið besta hótel herbergi - tvíbreitt rúm og sér baðherbergi með sturtu!!! ekki slæmt. Á fyrst degi vorum við heldur róleg - röltum aðeins í bæinn.
Dagur 2 - fórum downtown. Í dýragarðinn og rölt... æi dýragarðurinn var ekkert húrra.. fórum í stæðsta dýragarð í Evrópu í fyrra (í Svíþjóð) sem var miklu flottari!
Dagur 3 - fórum í moll í Watford. Flott moll og doltið shoppað þar. Finnst alltaf svo flott í þessum disney búðum.. Mmmm þar var súkkulaðibrunnur í súkkulaðibúðinni. Um kvöldið fórum við út að borða á kínastað...jömmí.
Dagur 4 - tókum daginn nokkuð snemma (fórum út kl 11) og downtown aftur - þurftum að taka lest sem tekur ca 20-30 mín að komast á leiðaenda. Fyrst var stefnt á Maddam Tussaud -dálítil röð fyrir utan ca 1/2 tíma bið.. ok ekkert mál. ennnn þegar við komumst inn fyrir dyrnar var skilti: röðin héðan tekur um það bil 60 mín!!!! herra gud. Lærdómur sem má draga af þessu: panta miða á netinu amk degi áður!!! en það er ekki hægt að bóka sama dag. Röðin þar var styttri! Við hjökkuðumst í röðinni en af því að við erum svo skemmtileg - sérstaklega ég - þá hafðist þetta. Alexandra hafði mjög gaman af því að skoða vaxstytturnar - þekkti reyndar ekki marga - en við reyndum að fræða hana. Næst ætluðum við í London eye. og já vorum búin að kaupa miða á netinu!! Náðum þangað og komumst í það á ca 10 mín. En ferðin í auganu tekur 30 mín. Það var mjög gaman og nauðsynlegt að vera með kortið sem mælt er með í þessari ferð en á því eru merkustu staðirnir merkti miðað við útsýnið. Alexandra komst svo í smá leiktæki - m.a. teygju-stökkst-trampolín sem hún gleymir held ég aldrei! Skoðuðum svo Buckingham .. bara að utan því miður.. Rólegt grill kvöld heima - mmmmm hrikalega gott og svo súkkulaði fodu í eftirrétt.
Dagur 5 - heimferðin.. var eiginlega búin að pakka daginn áður og bara sturta og rólegheit um morgunin. ennn svo hófst ferðin. Guðrún keyrði okkur á völlinn en það er ca 40 mín ferð sem tók svo amk 60 mín.. þar sem umferðin var extra-þung. Fundum réttan tékkinn stað fljótt en það var eitthvað bilað og röðin hreyfðist ekki lengi.. svo var komið að vopnaleitinni. Röðin var lengri en tilbúnu fram og til baka röðin leyfði.. æi þið vitið hvernig maður mjakast 2 metra áfram en 20 metra til hægri og vinstri.. svo við ákáðum nú bara að skella okkur í röðina og borða þar fyrir innan - jú miklu öruggara þar sem búið er að gera upp allar byssur og hnífa. Röðin gékk hratt - það vantaði ekki en hún var löng. Loksins þegar við komum í gegn var komið final call á flugið okkar..

Lærdómur sem má draga af þessari ferð:
1. það þarf vegabréf fyrir alla sem fara til England - líka ósofnar dömur.
2. það er hægt að redda neyðarvegabréfi - betra að hafa rúmlega 20 mín til þess - og já það kostar tæpan 7 þús kall fyrir barn
3. mæta klukkan 5.00 á völlinn ef þú átt flug í kring um 8 því kl 5.30 er röð og kl 6.00 er röð út!!! heyrði í einni sem var að tala við vinkonu sína í símanum. Oftast ekki girnilegt að bíða úti kl 6 á íslenskum morgni.
4. panta barnamat í vélinni fyrir barnið - Latabæjarmatur sem er eiginlega betur úti látin en fullorðinsmaturinn - það var til fyrir Alexöndru þó að ég hafi gleymt að panta hann.
5. bóka á netinu miða í Maddam Tussaud (amk 1 dags fyrirvara) og London Eye
6. maður eyðir alltaf meiri pening en gert er ráð fyrir þegar farið er til London.