Rockstar
Hver fylgist ekki með Rockstar þessa dagana....? Mér finnst Magni vera amk í topp 5 - kannski eitthvað hlutlæg en samt. Hann er frábær söngvari, gleymi aldrei söngnum í brúðkaupinu - geggjað.
Þessa dagana er ég sveitt við að laga til í garðinum... neyðist líka til að laga til inni þar sem 3-6 börn hafa leikið lausum hala undanfarna viku. Með tilheyrandi mold í garðinum er ekki hægt að segja að það sé hreint inni hjá mér....andvarp. Ryksugan fer á loft í dag *7-9-13* ef ég gleymi mér ekki í garðinum. Meðal annars er ég búin að teppaleggja garðinn... með jarðvegsdúk og hrúga möl yfir (með smá hjálp). Já það verður ekkert gras í mínum garði... Verð að eiga stóran garð svo það sé þess virði að slá. ómg... keypti þakrennur um daginn - mikið ógeðslega er þetta dýrt. Þarf að setja á 21 meter pg 5 horn og kostaði það 50 þúsund!!!!!! kræst... ég er ekki alveg að ná mér eftir þetta...........

<< Home