17. júní...
já það var rigning.. en þó var logn og sæmilega heitt - svo við skelltum okkur í skrúðgöngu.... eða amk hópgöngu! Skrítið að fara í skrúðgöngu þar sem eina sem heyrist er fólk að tala saman. Það er víst búið að bíða eftir lúðrasveitinni í 3 ár........ hún er ekki enn komin.............
Sandra sys var fjallkona - stóð sig bara vel - hefði þó mátt heyrast aðeins meira í hljóðkerfinu!
Eftir þessi brjáluðu skemmtiatriði - ræða, fjallkonuljóð, barna-skemmti-atriði og sence (iii ekki alveg að gera sig hjá mínum aldurhópi) var ákeðið að stór-famelían færi í kaffi heim til mín með viðkomu í bakaríinu... Svo skelltum við okkur í bíó á ísöld 2 - reyndar vildi Gaui horfa á HM - surpriiiiiiiiise - alveg fíla ég húmorinn í þessum teiknimyndum - þarf reyndar að horfa á hana síðar með ensku tali.
Well - engin ferðalög framundan í vinnunni svo það verður nógur tími til að blogga ef eitthvað sniðugt gerist..
Bíð bara eftir því að heyra að eitthvað sé að gerast hjá Rebekku..komin 4 daga framyfir

<< Home