Magnað

Monday, July 17, 2006

Blogg leti

Þá er kominn tími á blogg.. haha hljóma eins og Mæja!
Nú er ég mætt í vinnuna eftir heila 6 vinnudaga sumarfrí í dayjobbinu. Þurfti að sjálfsögðu eitthvað að vinna í búðinni þess á milli en en en fór í sumarbústað í Grímsnesinu. Það var æði - svo ekki sé talað um þetta nútímafólk eins og við Gaui erum. Það var sko ekki búið að ath það að úrslitaleikurinn í HM yrði á þessum tíma...... Gaui blánaði þegar hann áttaði sig á því!!! Svo komst hann nú að því að í bústaðnum er: 2 sjónvörp, dvd, video, rúv (jey), stöð 2 (real jey), sýn (double jey frá Gaua) og skár 1 (rokcstar jey)..... og svo er nettenging svo við gátum nú kosið Magna fram og til baka. Það var nóg að gera þegar rigndi. Á sunnudeginum var GEÐVEIKT (amk miðað við Ísland)... 23° í forsælu og nánast heiðskýrt.....það fóru rjóðar kinnar að sofa það kvöldið! Einum degi eyddum við í skoðunarferð um Geysi ofl - frábært veður þá - aðeins minni sól...
Heim komum við svo á fim kvöld - yfir Kjöl. Á föstudeginum héldum við áfram við pallagerð (rétt komið ofaní holurnar áður) og vúalla... með hjálp Hreiðars smíðameistara með meiru er pallurinn tilbúinn!!!!!! fer reyndar á eftir til að kaupa í smá skjólvegg. Fæ möl í garðinn í kvöld og er þá laus við helv djö moldar ógeðis garð. Orðin þokkalega leið á drullunni út um allt. Já og á snúrstaur og allt. Vantar bara garðhúsgögn - einhverjar tillögur?? (ég vil ekki drasl og alls ekki eitthvað blátt)

Svo stóð ég fyrir útimarkaði í miðbænum á laugardeginum - fannst nú rigna óþarflega mikið *hóst hóst* eiginlega allt of mikið...... en það tókst samt ágætlega til. Fallturninn sem fylgdi skemmttækjunum féll aldeilis í kramið hjá dótturinni!!

Vell ... verð aðeins duglegri að blogga á næstunni ;)