Magnað

Wednesday, July 26, 2006

Litlan mín

Alexandra er að fara í dag í útilegu... hún fer á undan með Hreiðari og Gunna. Svo leitum við þau uppi á Borgarfirði á föstudaginn. Líklega ekki erfitt að finna þau. Í gær mætti ég 2 löggubílum á stuttri ferð innanbæjar - var aðeins að flýta mér og þurfti því að bremsa í bæði skiptin.... Skrapp úr vinnunni til að skuttla Alexöndru í pass. Þá sagði hún: heppin varstu mamma að ná að bremsa, annars værir þú á leiðinni í hina áttina, þá hefðir þú sko ekki komist aftur í vinnuna - þá átti hún við á löggustöðina því ég hefði sko verið handtekin........