Sumarfrí... :)
Skráði mig í sumarfrí í næstu viku - þar með næ ég heilum 2 vikum samfleytt í sumarfríi ... amk í dayjobbinu - lofa engu með búðina. Það á semsagt að skella sér á Borgarfjörð eystri á Emeliönu Torrini tónleika. Útilegu stemmingin eykst með hverjum degi sérstaklega þar sem dregi hefur úr rigningarspá..
Suðurferð á fimmtudag - þessi típíska fram og til baka ferð. Reyndar ætla ég extra snemma af stað þar sem ég fer í klippingu í leiðinni. Það eru ekki ófáir kílómetrarnir að baki það sem af er sumri og hef ég séð ansi mikið af Íslandi þetta sumarið sem ég hef ekki séð áður!
En Rockstar í kvöld :) þannig að ekki verður farið snemma að sofa í kvöld - go Magni!

<< Home