Magnað

Monday, October 23, 2006

Helgin

Á föstudagskvöld skelltum við Gaui okkur á ball í íþróttahúsinu með Á móti sól.. smá partý heima á undan með saumó, en djöfull var ógeðslega gaman!! Ég hef bara ekki skemmt mér svona vel á balli LENGI. Gaui var alveg sammála mér í því.
Á laugardagskvöld var svo matarklúbbur - dear gooood hvað ég át mikið. Venjulega á ég ekki mjög erfitt með að klára desertinn (finnst þeir oftast æði) en þarna bara gat ég ekki meir .. úff. Hrikalega góður matur .. kannski ætti ég að taka það fram líka að þetta voru aðeins 8 réttir.

Þetta var bara helv.. góð helgi. Alexandra í Kef hjá ömmu sinni og afa og kom heim í svona glimrandi skapi á sunnudaginn.