Magnað

Thursday, October 19, 2006

Mýrin

Þegar Baltasar býður manni í bíó og drykk á eftir þá segir maður ekki nei....... þó það séu ca 150 aðrir með og Gaui minn líka. Við skelltum okkur á heimsfrumsýningu í Sauðárkróksbíói í gærkvöldi. Ég er ekki mikið fyrir íslenskar myndir en þessi var bara fín. Reyndar eins og í lang flestum íslenskum myndum er mjög mikið reykt og að sjálfsögu nokkuð um blót - það klikkaði ekki - ætli það sé ekki hægt að gera mynd án þessa?? Yrði hún kannski hundleiðinleg? En söguþráðurinn var góður - aldrei sem maður datt út og humorinn var góður. Mæli semsagt með henni.

Gaui minn á afmæli í dag og þar sem hann er ekki með bloggsíðu þá sendi ég netkveðju hér
til hamingju með daginn elskan