Magnað

Tuesday, December 19, 2006

Heiðri Stúfs bjargað

Æ… hann Stúfur er í uppáhaldi og mamman gleymdi því aðeins. Alexandra var því ekkert sérstaklega glöð þegar hún fékk 4 litlar baðkúlur frá uppáhaldinu…….hún var eiginlega bara hundfúl, svo fúl að hún sagði mér að henda þeim!!!
Svo settist hún á rúmið sitt og sagði: þetta er svindl… í gær fékk ég bók sem mig langaði ekkert í og í dag einhverjar baðkúlur og veistu hvað *** fékk .. hún fékk munnhörpu.(með tárin í augunum + stírur).
Úff.. mamman *hóst* ég meina jólasveinninn ætlaði nefnilega að vera svolítið melló þetta árið en gat ekki munað fyrr en eftir á að Stúfur er bestur…..þar til núna. Stúfur er sko EKKI lengur uppáhalds jólasveinninn… Eeeeen þar sem jólasveinamamman á lager sótti hún dót og tróð á bak við gardínurnar á meðan Alexandra var að kvarta í pabba sinn inni á klósetti. Svo gengum við mæðgurnar frá í herberginu, búa um og svona og síðast sendi ég hana til að draga frá. Augnabliki seinna heyrðist: þettavarekkiþaðeinasemStúfurgafmér………. (mjög hratt sagt). Svo jólasveinammann hafði bjargað heiðri Stúfs sem og degi fjölskyldunnar!!