Magnað

Tuesday, April 03, 2007

Gaui minn í skóla.

Já London ferðasagan er útrunnin.. það var svo sem ekkert eitt sem stóð uppúr - ja nema kannski vísareikningurinn *hóst*

Hann Gaui minn er búinn að sækja um skólavist í Kef... íþróttaakademíuna. Hann ætlar í íþróttafræðina og tekur kennararéttindi. 3 ár takk fyrir - ég er ekki alveg búin að gera upp við mig hvort ég vilji að hann komist inn en það komust 1 af hverjum 3 inn í fyrra. Hann ætlar að búa hjá m+p þannig að hann fær amk frítt húsnæði og líklega slatta að éta og ef ég þekki tengdó rétt þá þarf hann ekki að hafa eins mikið fyrir þvotti þar eins og heima hjá sér... ég þarf kannski að ræða við hana tengdamóður mína fyrir þetta svo að hún skemmi ekki fyrir mér áralanga þjálfun!