Frábær dagur..
Dagurinn í dag er búinn að vera geggjaður *hóst*
Í morgun á leið í skólann með Alexöndru spurði ég hvort það hefði ekki verið betra fyrir hana að hafa vind/regnbuxur með sér þar sem að það var nú hvasst og blautt..jú mamma viltu snúa við. Ekki málið - heim aftur bara til að komast að því að vindbuxurnar voru í skólatöskunni síðan á föstudaginn. Svo við fórum aftur út í skóla. Þegar þangað var komið spurði ég kæru dóttur mína hvort hún hefði ekki örugglega tekið leikfimistöskuna með sér þar sem ég hafði beðið hana sérstaklega um að muna eftir henni rétt áður en við fórum út í bíl...? Nei æ ég gleymdi henni. stun. Og heim við héldum. Í þetta skipti hafðist þetta allt og ég komst í vinnuna auðvitað of seint þar sem ég legg ekki mega snemma af stað.
Í vinnunni gekk allt á afturfótunum. Kerfið var bilað, vantaði upplýsingar á pappírana sem prentað var út, skjal sem ég hafði gert í sumar sent út um hvippinn og hvappinn og látið undirrita og að lokum þinglýsa var ónýtt.. þe helv...kerfið ræður ekki við svona snjallt plan sem reyndar einn yfirmaðurinn hafði látið mig gera. Fæn ég þarf að gera nýtt og eiga við þennan ekkert rosalega skemmtilegan kúnna. Eiginlega bara pínu þreytandi kúnna. Jæja skítt með það.
Kl 11 skaust ég í búðina (sem er btw í sama húsi og vinnan mín) til að kaupa ryksugupoka svo mamma gæti ryksugaði í blómó. Heim fór ég með pokana og aftur í vinnuna. Í hádeginu fór ég heim og fékk þær gleðifrétti að ryksugupokarnir pössuðu bara alls ekki. Ég sem hafði notað útilokunar-aðferði í valinu. Dæs. Aftur í búðina til að skipta. Þá voru helv... pokarnir sem mig vantaði ekki frami. Hvernig átti ég að velja þá?? Fékk að lokum réttu pokana. Heim fór ég og pokarnir pössuðu :) Var í 10 mín að losa og skipta um drasl síu draslið.
Mamma eldar stundum í hádeginu og ég nýt góðs af.. næstum því alltaf. Í dag hafði hún ákveðið að sjóða saltfisk. *Hroll* fæ alltaf klígju af saltbragðinu. Og húsið mitt angar af saltfisk. Dæs. Ákvað að skoða póstinn sem kom í morgun - reikningar og fleiri gleðigjafar. sniff sniff.. þetta var ekki lengur bara saltfisklykt.. þetta er svona skemmtileg brunalykt!! Frábært - mamma hefur ákveðið að steikja dásamlega saltfiskinn í fína pottinum mínu. Dæssss. Saltfisk ógeðslega vatnið hafði frussast út um allt........ upp á borðinu, upp á hillu, í skúffur og niður á gólf. Í skúffunum eru allir diskar, glös, hnífapör, áhöld, sleifur, sleikjur og guð má vita hvað.. og Guð líka. Ég komst að því að skúffurnar eru ekki vatnsheldar. Dææææssss. Uppþvottavélin var troðin og sett af stað. Þá voru eftir öll glös og öll hnífapör. Mamma má gera það. Ég þurfti að mæta í vinnuna þar sem matartíminn var búin og ég fékk 2 vínber.

<< Home