Stjörnukortið..
Tengdó sendi mér stjörnukortið mitt - eitthvað sem er byggt á fæðingadegin og ári.
Hér koma nokkrar línur um það:
Grunneðli og lífsorka: Jarðbundinm nákvæm og skynsöm. Eirðarlaus og þarf alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Gagnrýnin, með sterka fullkomnunar - og umbótarþörf. Strax eftir þessa lesningu var ég hrædd um að þetta væri meira og minna allt satt!
Hugsun: Rökföst og yfirveguð. Yfirleitt kurteis og vingjarnleg í tali. hummhum .. greinilega dónarleg stundum :s
Framkvæmdir: Finnur sig í hugmyndavinnu, sköpun og samstarfsverkefnum. Þarf að finna jafnvægi milli málamiðlana og ákveðni. Hélt að ég væri nú ekki frek í samstarfsverkefnum ....
Tilfinningar og heimili: Jákvæð og bjartsýn. Þarf lífsstíl sem einkennist af frelsi, ferðalögum, hreyfingu og fjölbreytni. Á ferð og flugi. semsagt high maintenance..... I know...
Ást og samskipti: Vingjarnleg, kurteis og fáguð. Góður diplómat. Laðast að fólki sem er skapandi og félagslega þroskað. Hefur þróað fegurðarskyn. hahahahah nú vitið þið af hverju ég vel ykkur sem vini - þið eruð nægilega félagslega þroskuð fyrir mig !!
Viðhorf og tækifæri: Rökföst og leitandi í viðhorfum. Skynsemis- og efahyggja. Get alveg samþykkt þetta með skynsemishyggjuna upp að ákveðnu marki... td Visa marki.
Lærdómur og agi: Prófraunir í lífi hennar tengjast sjálfstjáningu, sjálfsaga, skapandi verkefnum og stjórnun. Blómó..læri margt á að reka búðina.
Hugsjónir: Tilheyrir kynslóð sem dáir ferðalög, frelsi og þekkingarleit 'Heimsborgarar'. Vissi þetta nú..
Nýjungar: Tilheyrir kynslóð sem skapar byltingu í sálfræði og viðhorfum gagnvart félagsmálum og nánum samskiptum. Open up people...
Umbreyting: Tilheyrir kynslóð sem stendur fyrir breytingum á venjum og siðum í hjónabandi og nánum samskiptum. Gaui - hættu að lesa þetta og farðu að vaska upp, ég er í vinnunni, sendi þér sms þegar ég legg af stað - úr búðinni jú nó.. ;)
Veikleikar og hæfileikar: Djúp, gagnrýnin og einbeitt hugsun. Hæfileikar til að rannsaka og komast að kjarna mála. Stundum dul, stundum róttæk. Kaldhæðin. Á auðvelt með að breyta áætlunum sínum. Sveigjanleg. Getur komið reglu á kaos og mýkt upp aðstæður sem eru stífar og heftandi. Sterkar og næmar tilfinningar, spenna og ólga. Ástarþarfir geta rekist á lífstíl. Veit ekki alltaf hvað hún vill eða þarf. Skörp, kraftmikil og athafnasöm hugsun. Keppnisskap. Ræðin. Áhugi á líflegum rökræðum. 'Ég hef rétt fyrir mér' (WTF) Sterkar ástríður og þrár. Kraftmikil, lífleg og baráttuglöð í samskiptum. Aðlaðandi. Sterk einbeiting og skýr fókus. Góð varaorka. Öfgar, (vísa jú nó..kannski vinnan líka) vill finna takmörk getu sinnar. Ráðrík, vill hreinsa til og stuðla að umbótum. Getur verið grimm, en einnig ákveðin og markviss.
Þar hafið þið það - þetta er ég.

<< Home