Reykjavíkurferðir
Nú er ég komin í nefnd/starfshóp sem verður til þess að ég þarf að skjótast til R.víkur nánast 1x í viku þar til í apríl... Skaust semsagt suður á mánudagskvöld og kom í gærkvöldi. Þetta hentar bara ágætlega þar sem ég hef tíma inn á milli til að sinna mínu - skreppa í klippingu ofl :) - þ.e. ef ég keyri kvöldið áður.
Þetta þykir væntanlega of mikið fyrir R.víkur púkana sem finnst aaaaaaaaaalltof langt að keyra þessa leið 2-3x á ári (fyrsti stafurinn er M...) - en það eru sumir sem keyra hana 1x á dag alla daga og finnst það ekkert mál. Mér finnst sem sagt ekkert mál að skreppa 1x í viku í smá tíma. Þetta verður til þess að þegar ég fer í helgarfrí með famelíunni þá þarf ég ekkert að gera fyrir búðina eða eyða hálfum laugardeginum í klippingu og svo framvegis...ég er bara farin að sjá fram á helgarfrí næst þegar við komum suður - 11. feb. Þá er búið að plana að stoppa fyrst í Básbryggjunni og spila Buzz.. minni að það sé nafnið.. en mér skilst að þetta sé hrikalega gaman! Hlakka bara til ;)

<< Home