Magnað

Friday, January 27, 2006

Fjölhnútar...

Ég fór til læknis á miðvikudaginn af því að ég fann fyrir einhverjum hnúð í hálsinum - utaná. Ég mætti svo í ómskoðun á Akureyri í gær í fram haldi af því. Þar kom í ljós að ég er með fjölhnúta skjaldkirtil... það kemur svo læknir á Krókinn í næstu viku (læknirinn sem skar mömmu upp á mánudaginn v/skjaldkirtils) og hann tekur væntanlega ákvörðun hvort það þurfi nokkuð að gera en þetta er víst ekkert hættulegt.. gæti bara verið fyrir ef hnútarnir stækka.. það er semsagt einn sem er eiginlega farinn að angra mig og mér skilst að það sé hægt að stinga á hann og tæma en það er bara einhver vökvasöfnun...
Þetta er svo típískt ég að fá alla galla sem er ættgengir. Ég er það systkini sem fær og er með flestu líkamlegu gallana - reyndar búin að henda gleraugunum váá þvílíkur munur!!
1. naflaslit - gert við þegar ég var 5 ára
2. barnaexem og svo enn í dag þurrkabletti
3. óþolandi þurra húð - þarf alltaf að bera á mig krem eftir bað/sturtu og sérstaklega sund
4. gleraugu og þurfti alltaf að ganga með þau
5. Asma að einhverju leiti - næ ekki fullkomri innöndun...
6. dýra ofnæmi í massa vís - afgreiddi eina í búðinni um daginn sem var að koma beint úr hesthúsinu - fékk ofnæmi ...
7. ekki má nú gleyma matarofnæminu - eða grænmetis og ávaxta ofnæmi - common!
8. storknunarefni í blóði of lítið - ekki samt alveg vitað af hverju ég eyðilegg það ... :S en má semsagt ekki fæða börn.
9. skjaldkirtils hnúða bögg..
10. eitthvað sem ég er ekki búin að komast að...

svo fleira það sem er ættgengt og ég næ mér örugglega í á lífsleiðinni: mjaðmakúlu vesen og aðgerð, hjartaóregla einhver (pabbi með svoleiðis), gyllinæð (heillandi).


Er ekki í stuði til að telja upp það góða sem ég erfði í augnablikinu....