Magnað

Monday, March 13, 2006

Helgin að baki

Matarklúbburinn gekk vel - doltið svona á hlaupum síðustu klst. þar sem Gaui kom ekki heim fyrr en um fimm og ég var að vinna til 4. 2 tímar í matarboð og þá var eftir: ryksuga uppi - það bara varð að gerast! (slepptum því að skúra..), búa til hrásalat, skera niður ávexti og búa til fordrykk - djöfull var hann góður þó að hann væri með vodka!, leggja á borð - niðri by the way- öll glös og allt og grafa upp hnífaparatöskuna í ruslaherberginu...!, hrúa niður drykkjarföngum - því það er ýmislegt drukkið, búa til aðalréttinn - hafa hann tilbúinn á pönnuna og í ofnin já og ekki má nú gleyma því að fara í bað, blása hárið og allt.. - fór í ljós eftir vinnu...og barnið - já koma því í pössun.. endaði reyndar með því að ég hringdi í pabba og bað hann að sækja hana..
Þetta tókst nú ekki alveg allt fyrir kl. 7 en fór nálægt því. Þar sem við áttuðum okkur ekki á því fyrr en á fim sl. að við ættum að vera með klúbb - lítill tími í undirbúning þar sem við erum bara alltaf að vinna :( þá var bara deisjavú. Eins og fyrsti klúbburinn sem við héldum fyrir 5 árum. Mexicanskt þema með corona og alles. Jette gott ;)

Stefnan er tekin suður í kvöld - fundur á morgun og já ekki má nú gleyma læknatímanum hjá innkyrtlasérfræðinginum... þið munið hnútavandamálið. Spurning um að rúnta fram hjá húsinu þar sem báturinn er í garðinum.... og deyja úr hlátri