Magnað

Wednesday, March 08, 2006

safapressa

Fyrir tæpum 2 vikum keypti ég safapressu - algjör snilld!!
Ég var búin að gefa Gaua bókina "Endalaus orka" http://salkaforlag.is/index.html til hægri.. en það var varla hægt að nota hana án safapressunar. Nú fáum við okkur 2x á dag og finnum bæði töluverðan mun á orkuúthaldi!! og og og þetta eru góðir safar :)
í uppáhaldi hjá Gaua (og eiginlega mér): 4 appelsínur, 1 og 1/2 lime, 1 mangó. Þetta varð tæpur líter af safa. Annar agalega góður: mangó og vínber saman... mmmm bætti honum einusinni saman við appelsínu og ananas safa. Og gulróta og eplasafi saman - algjör snilld.
Við erum semsagt búin að vera að prufa okkur áfram. Í bókinni eru uppskriftir og hellingur af fræðslu - hvaða vítamín og efni eru í ávextinum/grænmetinu, hvað þú færð ca mikin safa úr hverju. og svo eru hugmyndir af morgundrykkjum, hádegi, kvöld, til að slappa af, koktailar og margt fleira... Svo á maður að vera duglegri í grænmetinu þegar líður á daginn...enn sem komið er hef ég bara prufað gulrætur og tómata..
og já hér er slóð inn á safapressuna ef einhver vill skoða http://www.ormsson.is/nyr/ til vinstri..

Hilsen frá orkuboltanum c',)