Öskudagurinn er liðin..
...og litla mín vildi vera NORN... held að ég hafi ekki verið búin að segja ykkur frá því að ég reyndi og reyndi að fá hana til að kaupa þennan rosa fína prinsessukjól. Sorry mamma ég vil vera Norn! Svartur nornakjóll (tættur ofkors), svartur nornahattur og hárkolla í stíl með fjólubláum lokkum.... Í gær morgun rauk hún í það að klæða sig og ætlaði bara í næfuþunna nornakjólinn (og reyndar brók...) Þá kom skemmtilega mamman inn í herbergi og sagði henni að fara í eitthvað innanundir - það var jú 8 stiga frost brrbrr. Hér kemur smá tala:
Alexandra: "en ég á enga svarta sokka!"
Mamman: "uuuuu þú ferð sko í sokkabuxur!"
A: "stun.. mamma! hvaða norn heldur þú að sé í bleikum eða rauðum sokkabuxum????"
Fann svo húðlitaðar þykkar sokkabuxur sem voru samþykktar..

<< Home