Magnað

Tuesday, April 18, 2006

Páskarnir

well.. nú er fríið búið og 2 daga vinna framundan og frí og 1 dagur og helgarfrí......mmmmmmmmmm I like.
Já páskafríið var bara lengra en jólafríið - svei mér þá - mér finnst þetta ekki hægt.
Við Gaui dunduðum okkur heilmikið í kjallaranum að ganga frá - já erum enn að taka upp úr kössum og fleira. Nú eru reyndar ALLIR búnir (þeir kassar sem voru heima - nú þurfum við að drusla okkur í geymsluna að ná í fleiri) það flögraði nú að mér að keyra þeim beint á haugana...ef maður er ekki farin að sakna einhvers núna þá er alveg eins gott að henda því.... eða hvað??? annars er allt skóladótið í geymslu og kannski ekki gott að henda því strax. ogogog meira að segja hengdum við upp á veggi (niðri) !! það er eitthvað sem hefur setið á hakanum allan tímann. Já þetta er búið að taka nærri því ár.........gubb hvað ég er orðin leið á múr/spartl/málingar/flísa/smíða ryki..... Enda fórum við með stóra FULLA kerru á haugana (í gámana) í gær. Garðurinn er semsagt ekki lengur rusalhaugur heldur bara drulluhaugur með smá snjó í ... ohhh hvað það væri gott að geta byrjað á honum í sumar. Það kemur svo algaleg drulla inn um gluggana þegar þetta er allt í mold og drullu.

Það vantaði ekki upp á átið um páskana... var að prufa hitamælinn í ofninum í fyrsta skipti - þvílík snilld.. bara stinga honum í kjötstykkið og stilla.. ofninn slekkur svo á sér þegar takmarkinu er náð! enda var kalkúnabringan jömmí og lambalærið akkúrat líka.

Svo eignaðist ég frænku 12. apríl Hildur Rós frænka komin með 3 - og bara ári eldri.. hummhumm... spurning um að fara að drífa í þessu??