Magnað

Wednesday, April 19, 2006

já skíðin takk fyrir

Jæja hvað haldið þið að ég hafi gert í gær.. skellti mér á skíði með barninu. Fór reyndar uppeftir bara til að leyfa henni að fara. En hún hefur farið 1x áður. Jeminn – hún var svo hissa þegar ég tilkynnti henni að við ætluðum að skella okkur –
hún sagði “er það?”
ég sagði “já”
hún “mamma – ertu að segja mér satt????”

hahahahah ekki alveg að trúa því að mamma hennar ætlaði ekki að vinna meira þann daginn heldur eyða honum með sér!!
Við eigum engin skíði svo það þurfti að leigja.. ekki alveg ókeypis.. 1750 fyrir hana og svo 3200 fyrir mig í lyftu og skíði.. prúttaði reyndar í gær þar sem ég var bara með samt.3000 þar sem hún átti upphaflega bara að fara. En nú er ég búin að finna í Skaffó skíði og tilheyrandi á 50% afsl… á mig .. ekki hana - á bara eiginlega ekki pening þar sem helv... iðnarmenn eru alltaf að senda mér reikninga!! ansk. .nú er ég hætt að framkvæma amk það sem kostar eitthvað meira en 5000 í senn.

Kannski verður næsta fjölskylduferðalag í svissnesku alpana????