Magnað

Monday, April 03, 2006

Ferðasagan


Jæja.. er ekki kominn tími á ferðasöguna.

Hún hófst ofkors á Króknum og á milljón að taka mig til, klára í Bygg vinnunni alls konar bréf, ganga frá búðinni oflofl því það var að koma (og eiginlega komið) hundleiðinlegt veður á norðurlandi......fór nú Þverárfjallið og þurfti að stoppa 3x til að banka af rúðuþurkunum því snjórinn bara festist á! og svo var stoppað á Blönduósi til að skafa ALLAN bílinn..jæja hraðspólum til kef. kl 8 mættum við hjónin í 'tékk-inn' það gékk hratt en ÓMG hvað tollahliðið er hægt.. úr skóm, úr belti, úr brókum (vissar tegundir ...). okkur tókst að eyða hummmhummmm ca 60 þús í fríhöfninni... 1 myndavél þar inní - lítil og handhæg digital. Og upp í flugvél með nesti í poka þar sem þetta var leiguflug Heimsferða með ítalska draumaflugfélaginu Futura.. notsomuch drauma.... Meðal þess sem við keyptum í fríhöfninni voru 2 dvd myndir til að horfa á í þessum líka fína dvd ferðaspilara sem Gaui fékk í 30 afmælisgjöf frá mér. Vitlausari hluti hef ég nú gefið honum! Þegar leið á flugið þurfti ég að pissa.. þetta er nú 4 tíma flug. Dreif mig inn og iukkk það var ekki rosalega snyrtilegt þarna inni - ekki kannski skítugt en svona gamalt að sjá.... eníveis.. þegar ég var ca hálfnuð á veru minni þarna inn fann ég hvað það var agalega vond lykt þarna líka.. ok nú var sett í 5. gírinn og önduninn gerð eins mögulega lítil og hægt var. Vorum nýbúin að horfa á In to the Blue þar sem fólk kafar og kafar einfaldlega með því að halda niðri í sér andanum. Þarna hefði ég viljað hafa verið að lleika í myndinni því þá gæti ég haldi andanum LENGI.... en loksins þegar ég slapp fram og lokaði hurðinni var skellt upp úr í vélinni... ansk.. það biðu spenntir farþegar (og ferðafélagar) að sjá mig þegar ég kæmi út því það vissu flestir af þessum ósköpum þarna inni en ég eiginlega missti af því þar sem ég vara að horfa á dvd..... svo heyrðist bara "ég myndi ekki fara þarna inn... sástu ekki svipinn á þessari sem var að koma fram..."
Vélin lenti nú heil og við í lagi, töskurnar komu flótt og við í rútunni upp á hótel. Hótelið var fínt (Pere IV) og snyrtilegt. Hef aldrei verið á hótelherbergi með svona stóru baðherbergi....
...ansk.. ætlaði að setja inn mynd en það er ekki hægt. Reyndar var herbergið allt stórt. Við (eignlega bara ég) tókum úr töskunum og stilltum air conditioning á aðeins kaldara.. það var bara frekar heitt í herberginu .. ca 27-30 gráður. Út fórum við (klukkan orðin svona 18) og niður í bæ. Þar tvístraðist hópurinn á Römblunni (aðal göngugatan) og út að borða.
Á föstudeginum var smá skoðunarferð um borgina þar sem farastjórin með fulla rútu af fólki hækkað ekki röddina eitt augnablik í ferðinni. KOMMON kerling - dísus hvað ég varð hneyksluð á henni. En um kvöldið var árshátíðin... gleymdi einu.. í flugvélinni þegar ég var eiginlega sofnuð hrökk ég upp og sagði: "shit ég gleymdi pilsinu" semsagt pilsinu sem ég ætlaði að vera í á árshátíðinni.. var með jakkann og bol við. Á hálftíma á fim kvöld fann ég mér dragt - fjúkkett.
Allir tóku leigubíla á staðinn og fór allt vel af stað. Fordrykkurinn fínn, matseðillinn leit vel út, og staðurinn flottur. 1. réttur - slapp til ekkert spes. 2. réttur ÓMG.. voooondur. meira að segja fékk Gaui hroll og þá er nú mikið sagt! 3.réttur pasta með sósu og fiski sem ég man ekki hvað heitir. Pastað og sósan var mjög gott fiskurinn allt í lagi - Gaui dró mig að landi. 4.réttur nautalund var nokkuð góð og desertinn var góður. Nóg af rauðvíni og hvítvíni og þjónarnir duglegir að hella í glösin! Allir í góðum gír og arkað var í bæinn þar sem hópurinn tvístraðist. Svo var haldið á skemmtistað og tjúttað fram á nótt.. rosalega gaman. Gaui spurði mig daginn eftir "háttaðir þú mig eða gerði ég það" .... "þú gerðir það sjálfur" sagði ég. "En gékk ég frá fötunum eða gerðir þú það" spurði hann... "ég gerði það".....við vorum doltið full og greinilega hann meira en ég!
Á laugardag skelltum við okkur í verslunarleiðangur - ótrúlega lítið þunn en þegar ég byrjaði að skoða inn í búðinum þá varð ég skyndilega aðein þynnri.... verslaði lítið framanað en skánaði þegar leið á daginn. Samt ekki mikið keypt og í FYRSTA sinn sem við Gaui erum að pakka niður eftir utanlandsferð þar sem við þurftum ekki að troða í töskurnar!.... reyndar með nokkuð mikið pláss. Það má deila um það tvennt: 1. við kunnum okkur hóf í búðunum 2. við erum búin að læra að fara bara með ansk... nógu stórar og margar töskur með okkur því að ég held bara alltaf höfum við þurft að kaupa tösku á leiðinni heim!! Um kvöldið fórum við nokkur saman (13) að borða á Los Caracoles - fínn staður. Eftir það fórum við Gaui í rómó gönguferð niður á höfn og löbbuðum strandlengjuna heim á hótel.
Auðvitað æfði ég mig í spænskunni allan tímann - kann nú ekki mikið - eiginlega bara pínu lítið... en reddaði mér samt stundum.
Eitt alveg kostuleg.. eiginlega tvennt: 1. það var búið að spyrja fararstjórana (frá Heimsferðum) hvort tíminn myndi breytast á meðan við værum þarna - í sumartíma... ég veit um eina sem var búin að spurja báða fararstjórana og aðra sem var amk búin að spyrja aðra.. alltaf var svarið nei nei það gerist ekki á meðan þið eruð hérna.. fyrir slembilukku ákváðum við Gaui að spurja í lobbyinu á leiðinni upp á laug kvöld.. já sögðu þeir glaðir - þið sofið einni klst minna í nótt og við vinnum einni klst minna........ WHAT..... við hlupum upp til að finna nokkra úr hópnum sem voru farnir upp á herbergi - rétt náðum í þau og sögðum þeim frá. Svo reyndum við að dreyfa þessu um hópinn eins og hægt var. Kommon þetta var brottfarardagurinn. Ég heyrði af nokkrum á flugvellinum sem misstu af morgunmatnum af því að þau vissu ekki af tímabreytingunni...Skandall!
annað - jú vélinni heim hafði seinkað um 4 klst... nema hvað þegar við vorum á leiðinni á völlinn í rútunni sagði farastjórinn að vélinni hafi seinkað um 1 klst. það er nú allt í lagi. en svo kom í ljós að þetta voru 4 klst. í raun hafi Heimsferðir vitað af þessu því vélin var upptekin þangað til... af hverju máttum við ekki eyða tímanum í borginni og fara svo út á flugvöll - jú af því að fararstjórnarnir vildu losna við okkur var svarið (höldum við)... Annar skandall!
Heimsferðir er ekki alveg uppáhalds núna..

Váá hvað þetta var löng saga.. eins gott að þetta var bara ein helgi!