Formlega klikk...
Þar sem ég hafði svo lítið að gera ákvað ég að fara að selja Volare vörurnar í heimasölu... ætla reyndar að koma þessu fyrir í búðinni amk pöntunarlista en það er víst bannað að selja þetta í búðum. Kíkið á volare.is - þetta eru svona heilsu-Aloe Vera-gott fyrir exem krem. En þessi óendanlegi áhugi á kremum oþh gerði það að verkum að ég varð að prufa - fékk málshátt um páskana: "að hika er það sama og að tapa" .. svo ég bara varð!!
Annar málsháttur sem ég fékk: "Gott er að hafa mikinn mat og marga helgidaga"
Held að þetta sé bara besti málsháttur sem ég hef fengið.
Þriðji sem ég fékk: "þú ert búin að fá nóg af páskeggjum...hættu þessu feita beljan þín og farðu aftur í ræktina"
Tek þetta að sjálfsögðu allt til mín og reyni mitt besta.. múhahaha
Í alvöru .. Volare er æði. Maja og Sandra bjóða í kynningu í Rvíkinni þar sem ég ætlað að bruna suður á land á sunnudag. Gott að vera í 3 vinnum og láta 1 vinnu borga ferðina en sinna öllum eitthvað og skreppa í fermingaveislu?? mmmmm slef hugsa alltaf annað slagið um Krít... Magga komdu með!! Við Gaui erum semsagt að reyna að fá eitthvað skemmtilegt fólk með okkur - Mæja og Gunni meika ekki sól svo ég er hætt að suða í þeim og að lokum eru bara Magga og Raggi eftir.. erum alveg að ná þeim með. Líklega þó bara í 1 viku - ekki satt Magga?... Eini gallinn við að vera ekki einu Íslendingarnir þarna er að brjósin fá að húka í haldaranum í sólbaði. Nema seinni vikuna en þá verða þau væntanlega eins og rauðir hattar þegar þau sleppa út....

<< Home