Barnið
Alexandra er mikil útivistarvera... hún myndi vera úti allt kvöldið ef hún fengi einhverju ráðið. Á hverju kvöldi þegar hún á að koma inn kemur hún eiginlega inn með fýlu af því að hinn og þessi eru ennþá úti. Í gær:
A "Mamma það er 3 ára strákur ennþá úti og ég er sjö og þarf að koma inn!!!!"
Ég "á þriggja ára strákurinn eftir að lesa heima fyrir skólann"
A "Nei"
Ég " er hann að yfirleitt að fara í skóla í fyrramálið"
A "já hann fer í leikskólann klukkan sjö!!"
Ég "það opnar enginn leikskóli klukkan sjö"
A "klukkan átta þá"
Svo eru vinkonurnar misjaflega duglegar að nenna að vera eins mikið úti og hún. Það er bara dásamlegt að hlusta á þær rökræða og semja (og ljúga pínu) hvernig hátta skuli tímanu.. í barbie í smástund með pet shop og svo út á línuskauta og svo...oft er niðurstaðan að vera í barbie eða mömmó úti.
Reyndar á hún eina vinkonu og einn vin sem eru alltaf til í að vera úti. Ég þarf bara að fara að láta hana ganga með úr svo hún geti fylgst með hvenær hún á að koma inn. Fræðslan um útivistatímann hefur farið fram og veit hún að hún má vera úti til tíu á kvöldin - skv lögum. Eeeeeen þegar það er skóli daginn þá virkar það ekki. Stráka vinurinn á ekki línuskauta og er Alexandra að kenna honum - hún lánar honum sína og fær hjólið hans í staðin. Svo veltast þau um af hlátri þegar hann er að klaufast áfram.
En af mér.. er með kynningu í kvöld og fer svo á Selfoss á morgun og heim aftur.
Skyldi Eiki komast áfram í kvöld?? Hef ekki einu sinni heyrt enska textann....

<< Home