Magnað

Tuesday, June 26, 2007

Alltaf á ferðinni

Já ég var ekki að hafa fyrir því að stoppa mikið við heima í síðustu dagana. Á mánudeginum (fyrir viku) fór ég til Akureyrar - Reykjavíkur - Kirkjubæjarklausturs. Daginn aftur sömu leið heim. Var veik á miðvikudag, keyrði til Rvíkur um kvöldið. Hveragerði á fimmtudag og svo heim. Til Rvíkur á sun kvöld, Selfoss ofl og svo heim í gær..... Og nei fór ekkert í heimsóknir. Þvílíka röðin á leiðinni til borgarinnar á sunnudagskvöld. Rétt komst upp úr göngunum og var svo á 0-10, stundum komst ég í 50 vááá.. gott að ég var á tímakaupi!!

Næstum því mánuður í sumarfríið..

Inga Huld og Friggi giftust um helgina í Norge. TIL HAMINGJU :=) Bíð bara eftir brúðkaupspartýinu sem á að halda þegar heim er komið. Rúm vika í næsta brúðkaup.
Verð að halda áfram að vinna ...