Erum að flytja..
..eða eignlega bara að klára að flytja. Í gærkvöldi byrjuðum við Gaui að taka upp úr kössum sem byrjuðu í geymslu út í bæ. Þegar það þurfti að tæma þar fóru þeir inn í bílskúr og þegar það þurfti að nota það pláss fóru kassarnir niður í stofu. Þar eru þeir búnir að dúsa í 2-3 vikur. Ég var um daginn búin með einn kassa og Gaui einn... bara 10 eftir....
Upp úr þessum kössum kom ýmislegt til að hlægja að. "fyrsta-" eitthvað var ansi algengt, td fyrsta afmæliskortið til mín frá honum osfrv. Gaui setti á sig hálsfesti sem ég gaf honum (vona að hann hafi tekið hana aftur niður) og já gjafir frá fyrrverandi sem fengu að fjúka - kannski kominn tími til..... hahahaha. Spurning um að laga aðeins oftar til í svona drasli?? Þarna voru líka bréf frá mér til Gaua og öfugt þegar hann var í USA náminu. Thank god að þetta var bara ein önn - þvílíkur bréfa stafli. Það eru einhverstaðar líka til bunki af útprentuðum tölvupósti. Síðan eru liðin 10 ár........ Ýmsar myndir td slatti af Alexöndru nýfæddri (pínku ponsu lítil), NY ferð með tvíburaturnum og fótboltapartý myndir. ooo svo voru gamlar skólabækur (HR) og heeeellingur af glósum. Það fékk allt af fjúka nema spænsku dótið. Langar að læra meira í spænsku... kannski við flytjum til Spánar þegar við erum örugglega búin að koma öllu draslinu fyrir - þá er hvort sem er kominn tími til að laga til í öllu aftur!
Hasta luego

<< Home